Árið 2026 verður áframhaldandi innleiðingar- og þróunarár hjá MMS. Áhersla verður lögð á að tryggja að þeir innviðir, verkfæri og þjónustur sem byggð voru upp á árinu 2025 nýtist skólasamfélaginu sem best og þróist áfram í takt við þarfir notenda.
Helstu áherslur ársins 2026 verða:
- að ljúka innleiðingu stöðu- og framvinduprófa í lesskilningi og stærðfræði og styðja kennara í að nýta niðurstöðurnar
- að efla útgáfu nýrra og uppfærðra námsgagna
- að halda áfram þróun og innleiðingu Nemendagrunns
- að þróa Mína miðstöð sem sameiginlega gátt fyrir kennara og skólastjórnendur
- að byggja áfram upp namsefni.is og bæta aðgengi að námsefni MMS
- að styðja áfram við innleiðingu aðalnámskrár með fræðslu og stuðningsefni
- að vinna áfram að ábyrgri nýtingu gervigreindar í þágu menntunar
- að styrkja skólaþjónustu og innleiðingu Heillaspora, MEMM, Föruneytis barna og Landsteymis
- að greina áhrif og árangur stuðningsverkefna með markvissari hætti
- að efla þjónustu, miðlun og samtal við skólasamfélagið um allt land
MMS mun áfram vinna náið með ráðuneyti, sveitarfélögum, skólum, kennurum, foreldrum, börnum og öðrum hagaðilum. Markmiðið er að byggja áfram upp traust bakland fyrir skólastarf á Íslandi - með barnið í miðjunni.