2025

Árið 2025

Árið 2025 var ár uppbyggingar, innleiðingar og aukinnar þjónustu. MMS vann að stórum stafrænum innviðaverkefnum, þróaði og forprófaði ný matstæki, gaf út og undirbjó ný námsgögn, styrkti stuðning við skólaþjónustu og jók sýnileika verkefna sinna gagnvart skólasamfélaginu.

Helstu áfangar ársins

  • Nemendagrunnur fór í loftið og innleiðing komst á lokametra
  • Innritun í framhaldsskóla fór í fyrsta sinn fram í nýju kerfi í gegnum Ísland.is
  • Viðurkenning hlaust frá Stafrænu Íslandi fyrir að hafa tekið sjö stafræn skref
  • Forprófun stöðu- og framvinduprófa fór fram í lesskilningi og stærðfræði
  • Nýr aðalnámskrárvefur fór í loftið með umfangsmiklu stuðningsefni fyrir kennara
  • Nýtt námsefni leit dagsins ljós
  • MEMM-vefur var opnaður með verkfærum, fræðslu og stuðningi fyrir skólasamfélagið
  • Unnið var að nýjum grunni fyrir namsefni.is, meðal annars með það að leiðarljósi að aðlaga námsefni á einfaldan hátt
  • Heillaspor-verkefnið var innleitt í tólf sveitarfélögum og Landsteymi studdi skóla í fjölda mála
  • MMS tók þátt í fjölmennum kynningum, ráðstefnum og fræðsluviðburðum um land allt

Lykiltölur ársins

Mannauður

64

starfsmenn störfuðu hjá MMS
í 58,2 stöðugildum

Innritun

5.131

nýnemar sóttu um innritun í framhaldsskóla

Innritun

4.136

nemendur fengu skólavist í fyrsta vali

Námsefni

493.850

eintök af námsbókum voru prentuð

Mat

~8.000

nemendur tóku þátt í forprófun stöðu- og framvinduprófa

Mat

26

skólar tóku þátt í forprófun stöðu- og framvinduprófa

Námskeið

~500

kennarar tóku þátt í námskeiðum um Ritunarrammann

Námskeið

~2.000

kennarar tóku þátt í námskeiðum um aðalnámskrá

Veflausnir

58.000

notendur sóttu Næsta skref heim

Námsefni

301

ljóð barst í Ljóðaflóð frá 25 skólum

Skólaþjónusta

126

mál voru unnin af Landsteymi

Fjármál

2.196 m.kr.

m.kr. voru tekjur MMS

Áskoranir í menntakerfinu

Íslenskt menntakerfi stendur frammi fyrir fjölþættum áskorunum. Alþjóðlegar mælingar hafa sýnt að námsárangur er slakari, meðal annars í lesskilningi og stærðfræði. Jafnframt hefur verið bent á aukinn mun milli nemendahópa, fjölbreyttari þarfir nemenda, aukna vanlíðan barna og takmarkaða yfirsýn vegna ósamræmdra gagna og ólíkra kerfa.

Þessar áskoranir kalla á markvissa uppbyggingu, samræmd gögn, öflug matstæki, vönduð námsgögn og stuðning sem nær til skólasamfélagsins alls. Verkefni MMS árið 2025 tóku mið af þessari stöðu og miðuðu að því að byggja upp traustari grunn fyrir umbætur til framtíðar.

Þrjú samofin markmið

Vinna MMS byggir á þremur samofnum markmiðum: menntun, farsæld og jöfnuði til náms.

Menntun

Markmiðið er að bæta námsárangur, styðja við framfarir í lesskilningi og stærðfræði, innleiða vönduð matstæki og styrkja kennslu með fjölbreyttum námsgögnum og faglegum stuðningi.

Farsæld

Áhersla er lögð á góða líðan barna, snemmtækan og þrepaskiptan stuðning, eflingu skólaþjónustu og betri verkfæri fyrir fagfólk og foreldra.

Jöfnuður til náms

Jöfnuður til náms felur í sér að aðlaga nám að ólíkum þörfum barna og tryggja að uppruni, kyn, efnahagur eða tungumála- og menningarbakgrunnur hafi ekki óeðlileg áhrif á árangur, líðan eða þátttöku.

Forgangsverkefni MMS

Á árinu 2025 var unnið að sex stefnumótandi verkefnum sem styðja sameiginlega sýn MMS um að skapa betri skilyrði fyrir börn til að menntast og dafna.

Aðlöguð námsgögn

Gagnadrifið menntakerfi

Matsferill – stafrænt vistkerfi matstækja

Skilvirk skólaþjónusta

Efling faglegar umræðu um menntamál

Ástríðufull vinnumenning

Verkefnin mynda samfellda heild. Námsgögn, námsmat og skólaþjónusta styðja beint við skólastarf og stuðning við nemendur. Gagnainnviðir, rannsóknir og mat byggja upp lærdóms- og umbótakerfi sem styður stefnumótun og ákvarðanir. Vinnumenning og mannauður tryggja framkvæmdagetu og gæði í innleiðingu.