Árið 2025 var fyrsta heila starfsár Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Árið einkenndist af uppbyggingu, innleiðingu og samhæfingu nýrrar stofnunar sem hefur það hlutverk að vera sterkur bakhjarl skólasamfélagsins um allt land.
Frá stofnun MMS hefur áherslan verið skýr: að skapa traustan grunn fyrir gott skólastarf, markvissari stuðning og skýrari yfirsýn yfir stöðu og framvindu barna og ungmenna. Til þess þarf öflug námsgögn, vönduð matstæki, aðgengileg stuðningsverkfæri, samræmda stafræna innviði og lifandi samtal við skólasamfélagið.
Á árinu urðu mikilvægir áfangar að veruleika. Nemendagrunnur fór í loftið og lagði grunn að samræmdari yfirsýn yfir grunnskólanemendur landsins. Innritun í framhaldsskóla fór fram í nýju kerfi í gegnum Ísland.is og stærsti árgangur sögunnar hóf nám í framhaldsskóla. Forprófun stöðu- og framvinduprófa í lesskilningi og stærðfræði fór fram í 26 skólum með þátttöku um 8.000 nemenda. Nýr aðalnámskrárvefur var birtur og umfangsmikið stuðningsefni gert aðgengilegt skólasamfélaginu. Þá hélt áfram mikilvæg þróun námsgagna, skólaþjónustu, stuðningsverkefna og þjónustu við notendur. Í því sambandi má nefna MEMM verkefnið sem var sett á laggirnar og miðar að því að styðja við menntun og inngildingu barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við sveitarfélög til að þróa árangursríka nálgun í móttöku, kennslu og stuðningi fyrir börn og ungmenni með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Nokkur sveitarfélög hafa hafið innleiðingu á Heillasporum, sem er verkefni sem styður við velferð, öryggi og virka þátttöku barna í inngildandi skóla- og frístundastarfi. Með tengslamiðuðum leiðum er skapað öruggt umhverfi þar sem börn fá tækifæri til að þroskast og ná árangri í námi. Bæði þessi verkefni hafa fengið miklar og góðar viðtökur.
Á sama tíma hefur MMS unnið að því að byggja upp eigin starfsemi og vinnumenningu. Starfsfólk stofnunarinnar kemur úr ólíkum áttum og býr yfir fjölbreyttri þekkingu og reynslu. Sameiginlegt verkefni okkar er að styðja við skólasamfélagið í flóknu og mikilvægu hlutverki: að skapa aðstæður þar sem öll börn fá tækifæri til að menntast, dafna og taka þátt.
Áfram eru stór verkefni fram undan. Ný og uppfærð námsgögn, innleiðing nýrra matstækja, þróun Minnar miðstöðvar, áframhaldandi uppbygging Nemendagrunns, ábyrg nýting gervigreindar og efling skólaþjónustu eru meðal þeirra verkefna sem munu móta næstu ár.
Ég vil þakka starfsfólki MMS fyrir elju, fagmennsku og ósérhlífni á þessu fyrsta heila starfsári stofnunarinnar. Það er ekki sjálfgefið að byggja upp nýja stofnun samhliða því að sinna stóru og krefjandi hlutverki en þið hafið sýnt að það er hægt.
Þórdís Jóna Sigurðardóttir
Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu