Hlutverk og áherslur
Námsgagnasvið vinnur að útgáfu heildstæðs og vandaðs námsefnis sem tekur mið af aðalnámskrá og þörfum skólasamfélagsins. Útgáfan er í fjölbreyttu formi, svo sem nemendabækur, verkefnabækur, vefir, hljóðbækur, hlustunaræfingar og kennsluleiðbeiningar.
Síðustu ár hefur aukin áhersla verið lögð á rafræna miðlun námsefnis. Hluti efnis kemur eingöngu út rafrænt, svo sem handbækur kennara, kennsluleiðbeiningar og hluti nemendabóka. Prentað efni er alla jafna einnig aðgengilegt sem rafbækur á vef MMS.
Hafist var handa við uppfæra og nútímavæða útgáfukerfi námsgagna sem heldur m.a. utan um skráningar- og lýsingargögn, s.s. útgáfusögu, prentun, dreifingu, upplag, útgáfuáætlun og höfundaréttarmál.
Útgáfa ársins 2025
Árið 2025 voru prentaðir 172 titlar í 493.850 eintökum og dreift til grunnskóla landsins. Þar af voru 158 titlar endurprentaðir og 14 voru í fyrstu prentun. Prentað efni stofnunarinnar er einnig aðgengilegt sérnámsbrautum framhaldsskóla og leikskólum eftir því sem fjárveitingar segja til um. Í útgáfu eru um 800 titlar, sem birtast sem tæplega 2000 vörur þar sem sami titill getur átt sér margar birtingarmyndir svo sem prentuð bók, rafbók og/eða hljóðbók. Megnið af námsefni MMS er opið öllum, hægt er að kynna sér framboð efnis á síðu MMS mms.is/namsefni eða í Kynningarskrá 2025. Hluti efnisins er á læstu svæði og er eingöngu ætlaður kennurum, t.a.m. hugmyndir að námsmati, lausnir og efni það sem höfundarréttur heimilar ekki opna birtingu.
Útgáfa eftir greinasviðum
| Greinasvið | Nýtt 2025 | Í vinnslu |
|---|---|---|
| Íslenska og íslenska sem annað tungumál | 14 | 15 |
| Erlend tungumál | 0 | 9 |
| List- og verkgreinar | 0 | 3 |
| Náttúrugreinar | 2 | 2 |
| Skólaíþróttir | 0 | 1 |
| Samfélagsgreinar | 7 | 11 |
| Stærðfræði | 0 | 1 |
| Upplýsinga- og tæknimennt | 2 | 2 |
| Námsgögn fyrir leikskóla | 3 | 0 |
Gæði og þróun námsefnis
Við gerð námsefnis er horft til gæðaviðmiða, faglegs grunns og þarfa nemenda og kennara. Handbók fyrir námsefnishöfunda styður við markvissa og vandaða gerð námsefnis, hvort sem efnið er ætlað í prent, stafræna miðlun eða hvort tveggja.
Gæði námsefnis felast í því að efnið styðji kennara í starfi, auðveldi nemendum nám og auki skilning þeirra. Áhersla er lögð á að efnið sé byggt á rannsóknum og viðurkenndum fræðilegum grunni, að það sé sannreynt og að stafrænar breytingar leiði fyrst og fremst til betri gæða og aðgengis.
Við gerð efnis er jafnframt horft til altækrar hönnunar náms og fjölbreyttra þarfa nemenda. Markmiðið er að námsefni styðji við jöfnuð, þátttöku og árangur allra barna.
Aðalnámskrá og stuðningsefni
Í byrjun árs 2025 var unnið að innleiðingu endurskoðaðra greinasviða aðalnámskrár grunnskóla. Innleiðingin fól meðal annars í sér fundarröð, myndbandskynningar og útgáfu prentaðs efnis með lykilupplýsingum sem dreift var til skóla.
Nýr vefur, adalnamskra.is, var settur í loftið í maí. Þar eru aðalnámskrár leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla aðgengilegar á einum stað ásamt stuðningsefni. Á árinu bættist mikið efni við vefinn um skipulag náms, kennslu og námsmats. Einnig voru birt dæmi um námsmarkmið við hæfniviðmið allra námsgreina.
Stuðningsefnið er svar við ákalli skólasamfélagsins um skýrari leiðbeiningar, samræmdari túlkun og betri stuðning við innleiðingu aðalnámskrár í daglegu skólastarfi.
Þörf fyrir ný og uppfærð námsgögn
Fjölbreytt, vönduð og nútímaleg námsgögn eru nauðsynlegur stuðningur við flókið starf kennara. Samtöl við kennara, aldur núverandi efnis, breytingar á greinasviðum aðalnámskrár og greiningar á námsefnisstöðu sýna að rík þörf er fyrir nýtt og uppfært námsefni.
Sérstök þörf er fyrir nýtt efni í íslensku, íslensku sem öðru máli, náttúrugreinum og stærðfræði. Síðla árs 2025 hófu þrír starfshópar kennara og annarra sérfræðinga vinnu við tillögur að útgáfu nýs efnis á þessum sviðum. Niðurstöður þeirra verða nýttar til frekari stefnumörkunar og vals á efni til útgáfu.
Einnig fór fram víðtæk greining á námsefni í íslensku sem öðru máli, meðal annars í samanburði við efni í nágrannalöndum. Næstu ár verður lögð sérstök áhersla á útgáfu efnis á þeim sviðum þar sem þörfin er mest.
Kennaralón í samstarfi við Andvara
Kennaralónið er unnið í samstarfi Andvara og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Þar geta kennarar og annað áhugafólk um menntun, deilt sínu efni eða nýtt sér vinnu annarra. Þar má finna hugmyndir, verkefnalýsingar, myndbönd, kennsluleiðbeiningar og ítarefni. MMS hýsir Lónið og veitir aðgang að efninu sem þar birtist en höfundar/eigendur efnis bera ábyrgð á innihaldi þess.
Lestrar- og menningarverkefni
Ríkisútvarpið
MMS og Ríkisútvarpið eiga í samstarfi bæði um einstök verkefni sem og um MenntaRÚV þar sem RÚV sér um tæknilega innviði og sýningarrétt og MMS um gerð og dreifingu kennsluefnis. Efni MMS er ætlað að skerpa tengsl myndefnis við aðalnámskrá grunnskóla þar sem það á við og auðvelda kennurum að auka kennslufræðilegt gildi efnisins.
Ljóðaflóð
Ljóðaflóð er ljóðasamkeppni sem MMS stendur fyrir í samstarfi við KrakkaRÚV. Grunnskólanemendur frá 25 skólum sendu samtals 301 ljóð í keppnina árið 2025. Þar af bárust 106 ljóð frá yngsta stigi, 86 frá miðstigi og 109 frá unglingastigi. Dómnefnd valdi eitt verðlaunaljóð á hverju stigi og fengu vinningshafar bókaverðlaun og viðurkenningarskjal auk þess sem þau fluttu ljóðin í Krakkafréttum.
Sögur
Sögur er samstarfsverkefni sjö stofnana. Markmið verkefnisins er að lyfta verkum barna, auka áhuga þeirra á sögugerð á fjölbreyttu formi og sýna börnum að hugmyndir þeirra skipti máli. MMS gefur árlega út bókina RISAstórar smásögur, sem ætlað er að hvetja börn til aukins lesturs og skapandi skrifa.
Sumarlestur
Sumarlestur er samstarfsverkefni bókasafna, stofnana og félagasamtaka með það markmið að hvetja börn til lestrar yfir sumartímann. MMS sér um gerð og útgáfu efnis sem bókasöfn um allt land geta nýtt til að ýta undir sumarlestur barna.