Fjármál og rekstur
Ársvelta MMS nam 2.196 m.kr. árið 2025 og rekstrargjöld námu 2.324 m.kr. Afkoma ársins var því neikvæð um 128 m.kr., en stofnunin skilaði 119 m.kr. afgangi árið áður.
Stærstu gjaldaliðirnir voru annars vegar launagjöld, sem námu um 40% af heildargjöldum, og hins vegar sérfræðiþjónusta, sem nam einnig um 40%. Undir sérfræðiþjónustu vegur hugbúnaðarþróun þyngst, en þar undir flokkast einnig höfundarréttargreiðslur vegna námsefnis og önnur sérfræðiþjónusta.
Prentun, póstur, flutningar og önnur þjónusta námu samtals tæpum 7% af heildargjöldum og leigugjöld námu tæpum 5%.
Mannauður
Hjá MMS starfar fjölbreyttur og samhentur hópur fólks sem deilir áhuga á því að styðja við skólasamfélagið. Markmið stofnunarinnar er að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk fær að nýta þekkingu sína, vaxa í starfi og vinna að verkefnum sem hafa raunverulegt gildi fyrir börn og skólasamfélagið.
Árið 2025 störfuðu 64 einstaklingar hjá stofnuninni í 58,2 stöðugildum. Starfsfólk MMS talar á annan tug tungumála og kemur víða að með fjölbreytta reynslu, menningu og bakgrunn. Þessi fjölbreytni endurspeglast í starfi stofnunarinnar og styrkir getu hennar til að mæta flóknum og margvíslegum áskorunum.
Á árinu var einnig unnið að stjórnunarþjálfun og eflingu stjórnenda.
Starfsánægja, heilsa og vellíðan
MMS leggur áherslu á faglegt og skemmtilegt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk fær að vaxa og njóta sín í starfi. Vellíðan og heilbrigði starfsfólks eru mikilvæg forsenda þess að stofnunin geti staðið við loforð sitt um að vera traust bakland skólastarfs.
Á árinu var starfsfólki boðinn aðgangur að Velferðartorgi MMS. Þar getur starfsfólk á öruggan hátt og í trúnaði leitað til fjölbreytts hóps sérfræðinga, svo sem svefnráðgjafa, sálfræðinga, sjúkraþjálfara, markþjálfa og næringarfræðinga.
Starfsfólk tók einnig þátt í heilsueflandi viðburðum á borð við Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna. Innan stofnunarinnar starfar jafnframt Hlaupasveit MMS.
Seinni hluta árs tók MMS í notkun Öldu, stafræna lausn fyrir vinnumenningu, fjölbreytileika og inngildingu. Lausnin hjálpar vinnustöðum að meta stöðu menningar, taka gagnadrifnar ákvarðanir og setja mælanleg markmið. Í Öldu er einnig boðið upp á gagnvirka örfræðslu um jafnrétti, inngildingu og fjölbreytileika.
Starfsdagur og fræðsla
Starfsdagur MMS fór fram á haustdögum og var áhersla lögð á tengsl og tengslanet. Fjallað var um hvernig ólíkar tegundir tengsla hafa áhrif á vinnustöðum þar sem flækjustig er hátt og hvernig hægt er að þróa og þroska tengsl til góðs.
Á árinu var einnig boðið upp á fjölbreytta fræðslu fyrir starfsfólk, meðal annars:
- fræðslu um fötlunarfordóma í tilefni alþjóðadags fatlaðs fólks
- fræðslu um menningarvitund og samvinnu
- fræðslu um opinber innkaup fyrir stjórnendur og starfsfólk sem kemur að innkaupum
- fræðslu um hatursorðræðu og fordóma
Rekstraryfirlit
| Þús.kr. | 2025 | 2024* |
|---|---|---|
| Tekjur samtals | 2.195.939 | 1.244.947 |
| Tilfærslur | 1.056 | |
| Laun og launatengd gjöld | 932.601 | 504.809 |
| Annar rekstrarkostnaður | 1.382.657 | 614.984 |
| Afskriftir og niðurfærslur | 8.112 | 5.200 |
| Gjöld samtals | 2.323.370 | 1.126.049 |
| Afkoma fyrir fjármagnsliði | (127.431) | 118.899 |
| Fjármagnsgjöld | (453) | (361) |
| Afkoma ársins | (127.884) | 118.538 |
*Þar sem stofnunin tók til starfa 1. apríl 2024 eru tölurnar fyrir 2024 einungis fyrir níu mánuði.