2025

Um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hlutverk, sýn og loforð

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu starfar að því að styðja við skólasamfélagið með fjölbreyttum verkefnum á sviði menntunar, námsmats, námsgagna, skólaþróunar, ráðgjafar og þjónustu.

Sýn

Sýn MMS er að á Íslandi verði bestu aðstæður til að menntast og dafna.

Hlutverk

Hlutverk MMS er að vera sterkur bakhjarl skólasamfélagsins.

MMS styður við skólasamfélagið með matstækjum, hágæða námsgögnum, fræðslu, ráðgjöf, upplýsingagjöf og stafrænum lausnum sem bæta aðstæður til náms, kennslu og farsældar. Starf stofnunarinnar miðar að því að styrkja kennara og annað fagfólk, auka yfirsýn og skapa betri forsendur fyrir snemmtækum stuðningi og markvissum umbótum.

Gildi MMS

Hjá MMS starfar samhentur hópur sem brennur fyrir því hlutverki að aðstoða skólasamfélagið við að skapa umhverfi þar sem öll börn fá tækifæri til að njóta sín og blómstra.

Við hlustum

Virk hlustun er forsenda góðrar samvinnu og trausts. Með því að hlusta skiljum við fólk, aðstæður og þarfir og getum brugðist betur við þeim væntingum sem gerðar eru til okkar.

Við lærum af reynslunni

Við lærum af reynslu, nýtum gögn og rannsóknir og leitum stöðugt leiða til að bæta starf okkar. Við skoðum eigin vinnu með gagnrýnum augum og vilja til að gera betur.

Við höllum okkur fram

Við teygjum okkur til skólasamfélagsins og höfum frumkvæði að samskiptum og stuðningi. Við leggjum áherslu á að vera aðgengileg, nútímaleg og lausnamiðuð.

Barnið í miðjunni

Við vinnum út frá hagsmunum barna og leggjum áherslu á barnaréttindamiðaða nálgun, jafnræði og inngildingu. Skólasamfélagið á að mæta barninu — ekki öfugt.

Skipulag stofnunarinnar

MMS skiptist í svið sem vinna hvert að sínu sérsviði en starfa jafnframt þvert á stofnunina að sameiginlegum markmiðum. Skipulagið endurspeglar breidd verkefna stofnunarinnar: námsgögn og námsmat, skólaþróun, stafræna innviði, þjónustu, miðlun, fjármál og mannauð.

Helstu starfseiningar MMS eru:

Skipurit MMS — starfsemi og tengsl sviða stofnunarinnar