Hlutverk skólaþróunarsviðs
Skólaþróunarsvið sinnir verkefnum sem falla undir stuðning, þróun og samhæfingu skólaþjónustu og menntunar um land allt. Sviðið styður við skólastarf með almennri og sérhæfðri fræðslu, þróun faglegra úrræða og verkfæra fyrir skóla og skólaþjónustu og innleiðingu stefnumótunar stjórnvalda á sviði menntunar og farsældar barna og ungmenna.
Árið 2025 einkenndist af þróun og innleiðingu verkefna sem styðja við inngildingu, snemmtækan stuðning, tengsl, farsæld og markvissari skólaþjónustu.
Á árinu 2025 tók starfsfólk skólaþróunarteymisins þátt í mörgum vinnuhópum þvert á ráðuneyti og stofnanir sem tengjast farsæld barna. Aðgerðir gegn ofbeldi meðal og gegn börnum sem og þátttaka í spretthóp um símanotkun barna í skólum svo fátt eitt sé nefnt.
Heillaspor – tengsla- og áfallamiðuð nálgun
Heillaspor er heildræn nálgun í skóla- og frístundastarfi sem byggir á þekkingu um mikilvægi tengsla, öryggis og snemmtæks stuðnings. Verkefnið styður starfsfólk við að skapa umhverfi þar sem börn upplifa öryggi, virðingu og að þau tilheyri, óháð félagslegum, menningarlegum eða tungumálalegum bakgrunni.
Á árinu 2025 var áfram unnið að innleiðingu Heillaspora og þróun verkefnisins í samstarfi við skóla, frístundastarf og ytri skólaþjónustu sveitarfélaga. Í kjölfar mikillar eftirspurnar hóf Skólaþróunarsvið að þróa starfsþróunarferli fyrir ytri skólaþjónustur sveitarfélaga. Markmiðið er að efla verkferla, faglega samvinnu og getu þeirra til að styðja við heildstætt skóla- og frístundastarf.
Ellefu sveitarfélög taka nú þátt í þessu samstarfi og hluti þeirra hefur hlotið styrki frá mennta- og barnamálaráðuneytinu í þágu farsældar barna.
Niðurstöður könnunar um ánægju með innleiðingu Heillaspora sýndu jákvæðar niðurstöður. Nær allir þátttakendur töldu líklegt að þeir myndu mæla með því að aðrir skólar innleiddu Heillaspor. Þá sögðust 92% þátttakenda hafa upplifað gott viðmót frá starfsfólki verkefnisins. Í opnum svörum komu fram vísbendingar um aukna samheldni, sameiginlegt tungumál og bættan skilning á líðan og hegðun barna innan skólasamfélagsins.
Þátttökuskólar hafa jafnframt lýst því að breytt nálgun og aðferðarfræði hafi leitt til þess að ofbeldistilvikum og erfiðum samskiptum innan skóla hafi fækkað. Þessar niðurstöður undirstrika mikilvægi þess að efla tengsl, þátttöku og öryggi í skóla- og frístundastarfi.
Frá einstaklingsmálum til heildstæðrar skólaþróunar
Í þróun Heillaspora hefur verið lögð áhersla á að færa stuðning frá því að vera fyrst og fremst viðbragð við einstaklingsmálum yfir í heildstæðari nálgun sem eflir grunnstarf skóla og frístundastarfs. Verkefnið styður ytri skólaþjónustu í að vinna markvisst með stjórnendum og teymum að greiningu áskorana, eflingu grunnstarfs og innleiðingu umbóta.
Áherslan er jafnframt á að styrkja gagnadrifna ákvarðanatöku, skýra hlutverk og ábyrgð og byggja upp sameiginlegan faglegan grunn þvert á fagstéttir. Með því skapast betri forsendur fyrir snemmtækum stuðningi, auknu samræmi og sjálfbærri þróun skóla- og frístundastarfs.
MEMM – menntun, móttaka og menning
MEMM er þróunarverkefni sem miðar að því að styðja við menntun og inngildingu barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í íslensku skóla- og frístundastarfi. Verkefnið er leitt af mennta- og barnamálaráðuneyti í samstarfi við Reykjavíkurborg og MMS og unnið í nánu samstarfi við sveitarfélög, menntastofnanir og fagfólk á landsvísu.
MEMM byggir á þremur meginþáttum:
Menntun
Að tryggja öllum börnum aðgengi og rétt til gæðamenntunar og námstækifæra óháð tungumála- og menningarbakgrunni.
Móttaka
Að koma á samræmdu verklagi um móttöku, menntun og þjónustu á landsvísu í leik-, grunn- og framhaldsskólum og frístundastarfi.
Menning
Að stuðla að fjölmenningarlegu og inngildandi skólaumhverfi þar sem virðing, jafnræði og þátttaka eru í forgrunni.
Á árinu 2025 var unnið að gerð MEMM-vefsins, sem miðlar verkfærum, fræðslu og hugmyndum sem styðja við menntun barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Þar má finna leiðbeiningar, góð ráð, kennsluaðferðir, námsefni og annað efni sem styður kennara og annað starfsfólk í skóla- og frístundastarfi.
Unnar voru leiðbeinandi móttökuáætlanir fyrir öll skólastig og fræðsluefni fyrir foreldra um íslenskt skólakerfi. Þá var unnið að heildstæðri útgáfu námsgagna fyrir þennan nemendahóp og gerð námsefnis á hæfnistigum íslensku sem annars máls.
Auk þessa var boðið upp á fræðslu og stuðning til foreldra og starfsfólks leik-, grunn- og framhaldsskóla og sveitarfélaga.
Föruneyti barna
Föruneyti barna miðar að því að efla grunnþjónustu við fjölskyldur með snemmtækum og fyrirbyggjandi stuðningi innan leik- og grunnskóla. Verkefnið fellur að áherslum farsældarlaga og Menntastefnu 2030 um samstarf heimila og skóla, snemmtækan stuðning og vellíðan barna.
Verkefnið byggir á gagnreyndu og menningarnæmu námsefni, Tengjumst í leik (e. Invest in Play), sem hefur verið þýtt og staðfært fyrir íslenskar aðstæður. Efnið styður foreldra og forsjáraðila í að efla jákvæð samskipti og tengsl, setja skýr og umhyggjusöm mörk, styrkja sjálfstjórnun og draga úr streitu innan fjölskyldna.
Ein helsta áskorunin sem verkefnið bregst við er að stuðningur við fjölskyldur hefur oft komið seint inn í ferli, þegar áskoranir eru orðnar umfangsmiklar. Með Föruneyti barna er leitast við að færa stuðning fyrr inn með því að veita foreldrum hagnýt verkfæri áður en vandi verður flókinn eða kallar á sérhæfðari úrræði.
Samhliða innleiðingu verkefnisins hefur verið lögð áhersla á samstarf við sveitarfélög, skólaþjónustur og skólasamfélagið í heild. Sveitarfélög, skólar og frístundaþjónustur geta óskað eftir þátttöku í innleiðingarferli og fá faglega handleiðslu og stuðning frá MMS á innleiðingartímanum.
Samhliða innleiðingu fer fram rannsókn á vegum Háskóla Íslands í alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi Invest in Play. Markmiðið er að fylgjast með upplifun þátttakenda og styðja áframhaldandi þróun og gæði verkefnisins.
Landsteymi
Landsteymi veitir sérhæfða ráðgjöf og stuðning í flóknum málum þar sem þörf er á að samræma þjónustu milli skóla, fjölskyldu og annarra þjónustuaðila. Teymið kemur oft að málum þegar önnur úrræði hafa verið reynd eða þegar samstarf hefur reynst erfitt og traust milli aðila rofnað.
Sérstaða Landsteymisins felst í getu þess til að leiða saman aðila, samræma aðgerðir og skapa farveg fyrir samþætta þjónustu með áherslu á farsæla skólagöngu barnsins. Við móttöku mála framkvæmir teymið kortlagningu á stöðu barnsins og vinnur með foreldrum og þjónustuaðilum að sameiginlegri áætlun um stuðning.
Árið 2025 vann Landsteymi 126 mál. Á síðustu árum hefur orðið breyting á eðli mála sem berast teyminu. Í upphafi voru málin oft mjög þung og komin langt í ferli, en nú berast í auknum mæli beiðnir frá fagfólki sem óskar eftir stuðningi fyrr í ferlinu. Sú þróun bendir til þess að samþætt þjónusta sé nýtt fyrr til að fyrirbyggja frekari vanda.
Árangur Landsteymisins er metinn með reglulegu endurmati og þjónustukönnunum. Í þjónustukönnun árið 2025 kom fram að allt fagfólk sem tók þátt var ánægt með þjónustuna. Þá voru 63% foreldra eða forsjáraðila ánægð með þjónustuna og 77% sögðust líkleg til að mæla með henni við aðra.
Niðurstöðurnar benda til þess að helstu styrkleikar teymisins felist í fagmennsku, góðu viðmóti, skjótum viðbrögðum og getu til að skapa traust samstarf milli fjölskyldna og þjónustuaðila.