2025

Samskipta- og þjónustusvið

Hlutverk sviðsins

Samskipta- og þjónustusvið gegnir lykilhlutverki sem stoðsvið innan MMS og starfar þvert á öll fagsvið stofnunarinnar. Hlutverk sviðsins er að styðja við miðlun, þjónustu og aðgengi að efni og verkefnum MMS, bæði í gegnum vefi, kynningar, ráðgjöf og beina þjónustu við notendur og hagaðila. Jafnframt annast sviðið fjölbreytta innri þjónustu og stuðning við starfsfólk.

Sviðið kemur að þróun veflausna með áherslu á efnisframsetningu, notendaupplifun, aðgengi og þjónustu, í nánu samstarfi við fagsvið stofnunarinnar og skrifstofu forstjóra sem fer með ábyrgð á stafrænni þróun.

Á árinu 2025 einkenndist starfsemi sviðsins af umfangsmikilli vinnu við miðlun, vefverkefni, aukið aðgengi að efni og styrkingu þjónustu við notendur.

Vef- og miðlunarmál

Á árinu var unnið að fjölmörgum vef- og miðlunarverkefnum í nánu samstarfi við námsgagnasvið og önnur fagsvið. Þar bar hæst vinna við nýja vefi og endurbætur á eldri lausnum með það að markmiði að bæta aðgengi, yfirsýn og notendaupplifun.

Unnið var að þróun vefsins adalnamskra.is, þar sem aðalnámskrár leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla eru aðgengilegar á einum stað. Einnig var unnið að MEMM-vefnum, namsefni.is, Skriftarvefnum og Skriftarsmiðjunni, yfirtöku og miðlun efnis undir heitinu Fjör og fræðsla og uppfærslu á gegneinelti.is í tengslum við Dag gegn einelti.

Þessi verkefni sýna hvernig miðlun, notendaupplifun og aðgengi eru lykilþættir í því að þjónusta MMS nýtist skólasamfélaginu í daglegu starfi.

Aðalnámskrárvefur

Nýr aðalnámskrárvefur var stórt verkefni á sviðinu og mikilvægt framfaraskref í miðlun námskrárefnis. Markmið verkefnisins, sem unnið var í samstarfi við námsgagnasvið, var að gera aðalnámskrá aðgengilegri og notendavænni fyrir kennara, skólastjórnendur og aðra hagaðila.

Með nýjum vef er hægt að nálgast aðalnámskrár leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla á einum stað. Leiðarkerfi vefsins var tekið til endurskoðunar og hannað upp á nýtt með áherslu á skýrleika, yfirsýn og einfalt aðgengi að efni.

Sérstök áhersla var lögð á að vefurinn styddi við notkun námskrár í skólastarfi. Þannig er hægt að tengja stuðningsefni við einstaka kafla og í grunnskólahlutanum eru útskýringar og dæmi tengd hæfniviðmiðum.

Næsta skref

Verkefnið Næsta skref hélt áfram að þróast og vaxa á árinu. Ný útgáfa vefsins fagnaði tveggja ára afmæli þann 2. apríl og jókst aðsókn verulega. Um 58.000 notendur sóttu vefinn heim á árinu og síðuskoðanir voru um 635.000.

Á árinu fjölgaði náms- og starfalýsingum, Vegvísir var uppfærður og nýjar undirsíður bættust við. Mikilvægur áfangi var sameining vefsins Nám og störf við Næsta skref í samstarfi við Iðuna fræðslusetur, Rafmennt og Nemastofu.

Með sameiningunni styrktist Næsta skref sem miðlægur vettvangur fyrir upplýsingar um nám, störf og mögulegar leiðir einstaklinga áfram í námi og starfsþróun.

Áhersla var einnig lögð á kynningu verkefnisins. Í mars var MMS með bás á viðburðinum Mín framtíð, þar sem nemendur í 9. og 10. bekk gátu kynnt sér vefinn á stórum snertiskjá. Undir lok árs var ákveðið að hefja samstarf við Háskólann í Reykjavík og APRÓ um þróun gervigreindarlausna tengdra Næsta skrefi.

Þjónusta og ánægja notenda

Samskipta- og þjónustusvið gegnir mikilvægu hlutverki í þjónustu við notendur MMS. Markmiðið er að upplýsingar séu aðgengilegar, áreiðanlegar og notendavænar. Þjónusta sviðsins birtist meðal annars í móttöku og úrvinnslu erinda, miðlun upplýsinga, stuðningi við kynningar og fræðslu og vinnu við vefi og annað efni sem snýr að notendum stofnunarinnar.

Niðurstöður þjónustukönnunar ríkisins 2025 gefa mikilvægar vísbendingar um stöðu þjónustu MMS og tækifæri til frekari umbóta. Þar mældist ánægja með þjónustu MMS 3,9, sem er hækkun frá fyrra ári þegar hún mældist 3,5. Áreiðanleiki upplýsinga mældist 4,1, samanborið við 3,7 árið áður, og reynsla af viðmóti starfsfólks mældist 4,4.

Niðurstöðurnar benda til jákvæðrar þróunar milli ára. Þær sýna jafnframt að áfram eru tækifæri til að styrkja þjónustu, meðal annars hvað varðar hraða þjónustu, sem mældist 3,8.

Fræðsla, kynningar og viðburðir

Á árinu var lögð rík áhersla á fræðslu, kynningar og miðlun verkefna MMS til skólasamfélagsins. Samskipta- og þjónustusvið studdi við skipulag, framkvæmd, kynningu og miðlun viðburða í nánu samstarfi við starfsfólk á öðrum sviðum stofnunarinnar.

Viðburðirnir beindust meðal annars að kennurum, skólastjórnendum, náms- og starfsráðgjöfum, starfsfólki sveitarfélaga og skólaþjónustu og öðru fagfólki sem starfar að menntun og skólaþróun.

Á árinu voru haldnir 40 viðburðir á vegum MMS, allt frá fræðsluerindum til stærri kynninga, málstofa og ráðstefna þar sem starfsfólk MMS tók virkan þátt.

Fjölbreyttur vettvangur fræðslu og samtals

Meðal stærri viðburða og kynninga á árinu voru:

Kennaraþing

Kennaraþing á Suðurlandi, Austurlandi og Norðurlandi, þar sem boðið var upp á kynningar, fræðslu og námsefniskynningar.

Mín framtíð

Mín framtíð í Laugardalshöll, þar sem Næsta skref og nýtt umsóknarferli í framhaldsskóla voru kynnt fyrir nemendum í 9. og 10. bekk.

Námsgögn

Íslensk námsgögn – hvað er til, málstofa og námsefniskynning þar sem sjónum var beint að íslensku námsefni, aðgengi að námsgögnum og framtíðarsýn um stafræna innviði í þágu skóla.

Ráðstefna

Ráðstefna Samtaka áhugafólks um skólaþróun í Stekkjaskóla á Selfossi, þar sem starfsfólk MMS tók þátt með erindum, málstofum og vinnustofum.

Á kennaraþingunum gafst mikilvægt tækifæri til að kynna verkefni, námsefni og þjónustu MMS í beinu samtali við skólasamfélagið. Á Suðurlandi voru haldnar 7 kynningar auk námsefniskynningar, á Norðurlandi var lögð sérstök áhersla á námsefniskynningu og á Austurlandi var boðið upp á blöndu af staðbundinni og rafrænni fræðslu.

Skólaþróun, námsefni og inngilding

Á ráðstefnu Samtaka áhugafólks um skólaþróun voru kynnt fjölbreytt verkefni MMS sem tengjast skólaþróun, mati, inngildingu og menntun barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Meðal verkefna og viðfangsefna voru:

  • MEMM, menntun, móttaka og menning
  • Matsferill og hringrás mats og kennslu
  • Heillaspor í átt að inngildandi skóla- og frístundastarfi
  • aðalnámskrá og skipulag náms og kennslu
  • íslenska sem annað tungumál, kennslufræði og námsefni
  • brúarsmiðastarf og farsæl samskipti við foreldra með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn
  • Sammála-verkefnið

Ráðstefnan var vel sótt og skapaði vettvang fyrir samtal við skólasamfélagið um innleiðingu, þróun og stuðning við fjölbreytt skólastarf.

Samstarf þvert á svið

Fræðsla og kynningar ársins sýna mikilvægi þverfaglegrar samvinnu innan MMS. Samskipta- og þjónustusvið kom að utanumhaldi, kynningu, miðlun, viðburðastjórnun og framsetningu efnis, en verkefnin voru ávallt unnin í samstarfi við sérfræðinga og starfsfólk á ólíkum sviðum stofnunarinnar.

Með þessum hætti styður sviðið við að verkefni MMS verði sýnileg, aðgengileg og nytsamleg fyrir skólasamfélagið.