Hlutverk matssviðs
Matssvið vinnur að þróun, innleiðingu og miðlun matstækja sem gefa kennurum, skólastjórnendum og skólasamfélaginu skýrari sýn á stöðu og framvindu nemenda. Markmiðið er að niðurstöður nýtist sem virkur þáttur í hringrás mats og kennslu og styðji við snemmtæka íhlutun, markvissa kennslu og betri námsárangur.
Matsferill – frá forprófun til fullrar notkunar
Matsferill er safn fjölbreyttra prófa og matstækja sem miða að því að gefa kennurum reglubundna og skýra sýn á námsstöðu og framvindu nemenda. Með markvissri notkun niðurstaðna verður hægt að greina fyrr þegar barn sýnir ekki nægar framfarir og bregðast við með viðeigandi stuðningi.
Á árinu 2025 fór fram mikil þróunar- og innleiðingarvinna innan Matsferils. Hún byggði á víðtæku samráði við skólasamfélagið, notendaprófunum, forprófunum og endurgjöf frá kennurum, nemendum, forsjáraðilum, sérfræðingum skólaþjónustu, sveitarfélögum, háskólasamfélagi og kennaraforystu.
Stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði
Í mars 2025 voru stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði forprófuð meðal um 8.000 nemenda í 26 skólum víðs vegar um landið. Um var að ræða 14 próf, þar af sjö í stærðfræði og sjö í lesskilningi.
Markmið forprófunarinnar var þríþætt:
- að safna gögnum til aldursbundinna viðmiða
- að prófa framkvæmd í rafrænu prófakerfi og innleiðingarnálgun
- að fá endurgjöf á inntak prófa, birtingu niðurstaðna og framkvæmd í rafrænu umhverfi
Könnun sem lögð var fyrir í tengslum við forprófun sýndi mikla ánægju með fyrirkomulag og framkvæmd prófanna. Stöðu- og framvinduprófin verða lögð fyrir í fyrsta sinn í fullri notkun í mars 2026 og niðurstöður verða aðgengilegar kennurum og skólastjórnendum í stafrænu umhverfi.
Lesfimi- og stuðningspróf
Á árinu var unnið að því að færa lesfimi- og stuðningspróf yfir í stafrænt umhverfi Matsferils. Samhliða þeirri vinnu var tækifærið nýtt til að endurskoða og bæta prófin í ljósi reynslu af notkun þeirra undanfarin ár.
Þrír skólar á Akureyri tóku þátt í notendaprófun á breytingunum og prufukeyrðu nýtt kerfi til að leggja prófin fyrir og skoða niðurstöður. Uppfærð próf verða innleidd í alla skóla í janúar 2026.
Ritunarramminn
Ritunarramminn er matsrammi og leið í ritunarkennslu og námi frá upphafi til loka grunnskólagöngu. Hann var gefinn út í mars 2025 og þróaður í náinni samvinnu við yfir 80 kennara víðs vegar af landinu.
Innleiðingu lauk í lok árs 2025. Um 500 kennarar tóku þátt í stað- og fjarnámskeiðum um notkun rammans í kennslu. Ritunarramminn styður við markvissari kennslu, skýrari viðmið og betri yfirsýn yfir framvindu nemenda í ritun.
Hljóm-2, LANIS og snemmtæk íhlutun
MMS hefur í samvinnu við Andvara unnið að uppfærslu innsláttargáttar fyrir skimunarprófið Hljóm-2 þannig að hægt sé að taka prófið miðlægt. Markmiðið er að straumlínulaga fyrirlögn og auðvelda markvissa eftirfylgd með niðurstöðum. Ný útgáfa var prófuð veturinn 2025–2026 í samvinnu við tvö sveitarfélög og stefnt er að fullri innleiðingu veturinn 2026–2027.
Skimunarprófið LANIS metur skilning og notkun máls meðal þriggja til fjögurra ára barna. Innleiðing prófsins er í höndum MMS. Sem fyrsta skref í innleiðingu lögðu 13 skólar í Breiðholti listann markvisst fyrir og veittu mikilvæga endurgjöf, meðal annars vegna þýðinga. Stefnt er að fullri innleiðingu veturinn 2026–2027 sem hluta af Matsferli.
Frá árinu 2021 hefur sveitarfélögum boðist að taka þátt í verkefninu Snemmtæk íhlutun – mál og læsi. Verkefnið hefur verið innleitt í yfir 60 leikskólum víðs vegar um landið. Árið 2025 tóku Árborg og Borgarbyggð þátt í verkefninu.
Stikum af stað
Á árinu 2025 var unnið að endurskoðuðu stöðumati fyrir nýkomna nemendur í grunn- og framhaldsskóla, Stikum af stað. Stöðumatinu er ætlað að draga fram styrkleika, kunnáttu og fyrri reynslu nýkominna nemenda á Íslandi ásamt því að kanna bakgrunnsþekkingu þeirra og nýtist þannig við gerð námsáætlunar fyrir nemendur og markvissari móttöku.